Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Tveir skipta með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmlega 211 þúsund krónur í sinn hlut. Báðir miðarnir eru í áskrift.
7 miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í N1, Skógarseli 10 í Reykjavík, á heimasíðunni lotto.is og fimm miðar eru í áskrift.