Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti vikunnar. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor þeirra 664.560 kr. Miðarnir voru keyptir hjá Olís á Siglufirði og Hagkaupum, Akureyri
Fjórir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá þeir 100 þúsund krónur hver í vinning. Þrír miðanna eru í áskrift og einn var keyptur í Ungó í Reykjanesbæ