Það var heppinn miðahafi sem var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti vikunnar og fær fyrir það rúmar 10 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur á heimasíðunni lotto.is.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Fjórir miðar voru í áskrift og tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu.