- 1 poki klettasalat
- 1 box brómber
- 1/2 dl bláber
- 1 svocado skorið í sneiðar
- 1/2 gúrka skorin í sneiðar
- 1 dl mulinn fetaostur
- 1/2 dl heslihnetur eða aðrar hnetur
Vinaigrette dressing:
- 1/2 dl ólívuolía
- 2 msk ferskur lime safi
- 1 msk hlynsýróp eða önnur sæta
- 2 msk fínsöxuð fersk mynta
- ¾ tsk salt
- svartur pipar
Aðferð:
1. Hristið saman hráefnin í dressinguna. Raðið saman salatinu og hellið dressingunni yfir. Það má einnig gera meiri máltíð úr salatinu með því að bæta við soðnum búlgum eða kínóa.