- 1/2 gúrka, skorin í strimla
- 1 tsk hvítvínsedik
- 1/4 tsk hrásykur eða ljós púðursykur
- 1 msk hveiti
- 1/4 tsk reykt paprika
- 1/4 tsk timjan
- 1/4 tsk cumin
- 2 þorsk eða ýsustykki
- olía
- Hamborgarabrauð að eigin vali, létt ristuð
- chilli mæjó
- handfylli klettasalat
- salt
Aðferð:
1. Setjið gúrkurstrimlana í skál ásamt hvítvínsediki, sykri og smá salti. Blandið öllu vel saman.
2. Blandið hveitinu og kryddunum saman og veltið fiskbitunum uppúr hveitinu.
3. Hitið 2 msk olíu á pönnu og steikið fiskinn í 2-3 mín á hvorri hlið eða þar til hann er orðin fallega gylltur og eldaður í gegn.
4. Smyrjið chilli mæjó á hamborgarabrauðin. Raðið næst klettasalati á brauðin ásamt fisknum og gúrkustrimlunum. Lokið þeim og berið fram strax.