Hráefni:
- 1 1/2 dl ferskur appelsínusafi og 2 tsk rifinn appelsínubörkur
- 3 msk sojasósa
- 1/2-1 tsk chilli-hvítlauksmauk
- 2 msk púðursykur
- 2 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 1 msk hrísgrjónaedik
- 1/2 dl vatn
- 1 1/2 msk maíssterkja
- 500-700 gr kjúklingabringur, skornar í bita
- 1 tsk salt
- 2 msk ólívuolía
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 190 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu. Setjið kjúklingabitana í skál ásamt ólívuolíu og salti. Dreifið úr kjúklingnum á ofnplötuna og bakið í 20 mín.
2. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er sósan útbúin. Blandið saman vatni og maíssterkju í skál. Hellið þessu næst í lítinn pott og hitið ásamt öllum hinum hráefnunum. Náið upp suðu og leyfið þessu að malla í 3-5 mín eða þar til sósan fer að þykkna.
3. Þegar kjúklingurinn kemur úr ofninum er sósunni hellt yfir. Berið fram með hrísgrjónum.