Auglýsing
- 6 eggjahvítur
- 250 gr sykur
- 2 tsk maíssterkja
- 1 tsk hvítvínsedik
- Þeyttur rjómi og ber á toppinn
Aðferð:
- Hitið ofninn í 130 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru orðnar vel stífar. Þeytið áfram og bætið sykrinum við, eina msk í einu, þar til allur sykurinn er kominn saman við. Bætið þá maíssterkju og ediki og hrærið áfram í 30 sek.
3. Mótið einskonar skál úr þessu á ofnplötuna og sléttið hliðarnar. Bakið í 1 klst og 5 mín. Slökkvið þá á ofninum og opnið örlítið hurðina á honum. Látið Pavolvuna standa í honum í 4-5 mín eða yfir nótt. Þeytið rjóma og fyllið upp í skálina og skreytið með ferskum berjum að eigin vali.