Auglýsing
Hráefni:
- Ferskur aspas
- 2 msk ólívuolía
- 4 sneiðar af parmaskinku, skornar niður
- 1/2 dl rifinn parmesanostur
- 2 msk furuhnetur
- salt og pipar
- ferskur sítrónusafi ( má sleppa )
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu. Raðið aspasinum á plötuna og setjið ólívuolíu yfir ásamt salti og pipar.
2. Dreifið næst parmaskinkunni, furuhnetunum og parmesanostinum yfir. Bakið þetta í um 10-15 mín eða þar til parmaskinkan er orðin stökk og aspasinn er farinn að mýkjast. Gott er að kreista sítrónusafa yfir þetta áður en þetta er borið fram.