Hráefni:
2oo gr ljóst súkkulaði
100 gr ljóst súkkulaði
200 gr rolo
100 gr Digestives súkkulaðikex brotið í litla bita
60 gr sykurpúðar litlir (eða stórir klipptir niður í litla bita)
65 gr salthnetur saxaðar gróft
Aðferð:
1. Bræðið dökka og ljósa súkkulaðið saman í potti yfir vatnsbaði.
2. Allt hitt hráefnið fer saman í skál (skiljið eftir helminginn af Rolo-inu)
3. Þegar súkkulaðið er bráðið þá hellið þið því ofan í skálina með hinu hráefninu og blandið vel.
4. Hellið síðan blöndunni í form c.a. 20 x 20 cm. Gott er að smyrja formið áður eða setja bökunarpappír í það.
5. Raðið síðan afgangnum af Rolo-inu yfir þetta og setjið inn í frysti í allavega 1 klst og skerið svo í hæfilega munnbita. Þetta geymist best í lokuðu íláti inní ísskáp eða frysti. Njótið !