Hráefni:
- 2 1/2 dl hnetu eða möndlusmjör
- 220 gr mjúkar döðlur
- 2 tsk vanilludropar
- 1 egg
- 220 gr bráðið dökkt súkkulaði
- saxaðar salthnetur til skrauts, má sleppa
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 180 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Setjið hnetu/möndlusmjör í matvinnsluvél ásamt döðlum og vanilludropum. Blandið þessu vel saman þar til úr verður einskonar deig. Bætið þá egginu saman við og blandið í nokkrar sekúndur í viðbót. Mótið 14-15 litlar kúlur úr deiginu og raðið þeim á ofnplötuna. Notið gafall til þess að þrýsta örlítið á kúlurnar. Bakið þetta næst í ofninum í 9-10 mín. Það er mikilvægt að ofbaka þær ekki!
3. Takið smákökurnar úr ofninum og kælið þær. Látið næst bráðið súkkulaði leka vel yfir þær og toppið með söxuðum salthnetum. Kökurnar geymast í kæli í loftþéttum umbúðum í allt að 4 daga.