Auglýsing
Hráefni:
- 3 msk smjör, brætt
- 3 msk ólívuolía
- 1/4 tsk þurrkað rósmarín eða 1/2 tsk ferskt saxað
- 2-3 meðalstórar sætar kartöflur skrældar og skornar í þunnar sneiðar
- 1 skalottlaukur skorinn í þunnar sneiðar
- Sjávarsalt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200 gráður.
2. Hrærið smjöri, ólívuolíu og rósmarín saman í skál. Penslið eldfast mót með 1 msk af blöndunni. Raðið næst kartöflusneiðunum í mótið. Stingið sneiðum af skalottlauk inn á milli sneiðanna. Penslið kartöflurnar með smjörblöndunni og kryddið vel með salti og pipar.
3. Leggið álpappír yfir og bakið í ofninum í 1 klst. Hækkið þá hitann í 230 gráður og takið álpappírinn af. Bakið þetta áfram í 10-15 mín. Berið fram strax.