Maður er alltaf að kaupa fersk krydd en svo verður alltaf afgangur sem maður setur í ísskápinn eða út í glugga og hvað gerist svo…það gleymist og verður ónothæft EÐA það bara deyr…
En við stingum upp á að þið búið til ykkar eigið kryddsmjör sem má svo nota á brauð, soðnar kartöflur, á fiskinn á kjötið, yfir steikta grænmetið….og auðvitað geyma það í kælinum í litlum krukkum. Af því að við ELSKUM krukkur.
OK, hvað áttu til í ísskápnum? Ef þú átt steinselju og hvítlauk þá geturðu búið til dásamlegt hvítlaukssmjör og setur auðvitað saman við smávegs salt og pipar. Þú fikrar þig áfram með magnið af hvítlauk og steinselju en það borgar sig að hafa ekki hvítlaukinn of yfirþyrmandi.
Steinselju og hvítlaukssmjör
1 hvítlauksrif
100 gr af smjöri
hellingur af steinselju
salt og pipar
Allt í matvinnsluvélina og þeytt saman stutta stund. Í KRUKKU og inn í skáp. Geggjað með bökuðum kartöflum, lambi, á humarinn eða á pönnusteikt eggaldin…
Kóríander og Límónusmjör
Rífðu börkinn niður á rifjárni af einni límónu
100 gr smjör
hellingur af kóríander
salt og pipar
Allt í matvinnsluvélina og þeytt saman stutta stund. Í KRUKKU og inn í skáp. Gott með steiktu grænmeti, brætt ofan á núðlusalat, á ristaða brauðsneið með kotasælu, á grillaða maísstöngla…
Myntu og sítrónusmjör
Rífðu börkinn af einni sítrónu niður á rifjárni
100 gr smjör
hellingur af ferskry myntu
salt og pipar
Allt í matvinnsluvélina og þeytt saman stutta stund. Í KRUKKU og inn í skáp. Þetta er sjúklegt á soðnar kartöflur bornar fram með grænu salati, sumir elska myntu ofan á lambasteikina…
Timían og hunangssmjör
Hellingur af fersku timían lauf tekin af stönglinum
100 gr. smjör
1 kúfuð mtsk hunang
salt og pipar
Allt í matvinnsluvélina og þeytt saman stutta stund. Í KRUKKU og inn í skáp. Gott í bakstur Já! ef þú bakar morgunverðarbollur eða horn þá er geggjaðr að fylla deigið með smávegis af þessu yndislega góða smjöri. þetta er geðveikt ofan á ristað brauð og setja ofan á hvít-mygluost…
Þarna sjáiði að möguleikarnir eru endalausir og nú er engin ástæða til að henda kryddunum!