Þessi töfradrykkur eykur brennslu og er því fleygt að hægt að grennast með því að drekka hann á hverjum degi. Þú átt að drekka hann um 20 mínútum eftir máltíð og hefur hann afar góð áhrif á heilsuna, m.a. á hjarta- og æðakerfið og minnkar líkur á háþrýstingi. Greipaldin inniheldur allskonar vítamín og steinefni, ásamt því að það berst gegn bakteríum og styrkir ónæmiskerfið. Það er fullt af C vítamíni og inniheldur einnig A, B,D og E vítamín ásamt kalki, fosfór, magnesíum, mangani, sinki, kopar og járni.
Uppskriftin er einföld:
Eitt stórt greipaldin
Ein matskeið hunang.
Aðferð:
Skerðu greipaldinið í heminga, best er ef það er kalt úr ísskáp. Taktu aldinkjötið út með skeið. Settu kjötið og hunangið í blandara og settu hann af stað. Drykkurinn ætti að vera án nokkurra korna.
Í drykknum er pektín sem berst á móti kólesteróli í blóði (ef þú borðar eitt greipaldin á dag minnkar slæma kólesterólið um 15,5%) og hefur það góð áhrif á insúlínið í blóðinu. Í greipaldini er einnig lýkópen sem er gott andoxunarefni.