Pavlova! Bara nafnið er eitthvað svo ævintýralegt og fallegt…en hér er uppskrift að Pavlovu með dulche de leche rjóma, banönum og súkkulaði. Þessi er himnesk…
3 eggjahvítur
3/4 bolli (165g) flórsykur
500 ml þeyttur rjómi, ekki stífþeyttur en þar til hann er eins og ský…skiljiði?;)
1 1/2 bolli af dulce de leche / (þarf að búa til fyrirfram. Sjá hér að neðan)
2 þroskaðir bananar
100g dökkt súkkulaði rifið smátt
Klassískt Dulce de leche: (Þetta er í raun bara sæt, þykkt karmelíseruð mjólk sem gott er að nota í ýmsa ábætisrétti)
Hrærið saman 4 bollum af mjólk, 1 1/4 bolla af sykur and 1/4 teskeið bökunarsóda (baking soda) í skaftpotti með þykkum botni. Látið suðuna koma upp og lækkið síðan hitann alveg niður í lægsta og látið malla, loklaust, þar mjólkin þykknar og karmelíserast í ca. 1- 1 1/2 tíma. Hrærið vel af og til og varist að brenna mjólkina við. Eftir klukkutíma hægsuðu hrærið 1 tsk af vanilludropum samanvið. Mjólkin verður karamellulituð. Setjið í skál og kælið.
Skref 1
Hitið ofninn í 120° og þekið plötu með bökunarpappír og teiknið tvo ferhyrninga með blýanti sumsé 2 X 10cm x 25cm ferhyrninga á pappírinn.
Skref 2
Þeytið eggjahvíturnar með salti á hnífsoddi í hrærivél þar til að hvítan byrjar að þykkna. Bætið sykrinum smá saman við og þeytið þar til allur sykurinn er kominn samanvið og eggjahvíturnar eru orðnar stífþeyttar.
Skref 3
Smyrjið marengsinum á bökunarpappírinn og myndið tvo ferhyrninga.
Skref 4
Bakið í 45 mínútur og slökkvið síðan á ofninum og látið kólna í ofninum með ofnhurðina lokaða.
Skref 5
Skiptið þeytta rjómanum í tvær skálar og blandið helmingnum af dulce de leche saman við rjómann í annarri skálinni.
Skref 6
Samsetning. Setjið annan marengsferhyrninginn á diskinn sem pavlovan verður borin fram á. Smyrjið dulce de leche rjómanum vel ofaná og skerið niður bananana og raðið ofan á rjómablönduna. Setjið hinna marengsferhyrningin ofaná og setjið þeyttan rjóma ofaná. Skreytið með súkkulaðinu. Berið strax fram! Sko strax…þessi lætur ekki bíða eftir sér…