Auglýsing
Enginn var með allar Lottótölurnar réttar í útdrætti vikunnar og verður potturinn því þrefaldur í næstu viku. Fimm heppnir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver rúmar 88 þúsund krónur í sinn hlut. Þrír miðanna voru í áskrift og tveir á lotto.is
Sjö voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver í vinning. Miðarnir voru keyptir í Happahúsinu, Kringlunni, Hagkaup Eiðistorgi, Seltjarnarnesi, Snæland, Núpalind, Kópavogi, Lotto-appinu og tveir á Lotto.is