Heima með Helga – Helga Björns og Reiðmenn vindanna hefur rækilega slegið í gegn hjá þjóðarsálinni og bókstaflega bjargað landanum í samkomubanni. Listin hefur logað með einvala liði listamanna sem hægt hefur verið að njóta hjá Sjónvarpi Símans á hverju laugardagskvöldi.
Auður var tekinn á orðinu og það var sko ekki bara dansað heldur sungið með þessum miklu Snillingum sem hafa dottið inn á skjáinn með Helga Björns. Helgi stjórnar skútunni af einstakri snilld og persónutöfrar Kóngsins hafa náð Hjartasálinni heima í stofu.
Vonandi verður hver helgi með Helga áfram um ókomna tíð eftir samkomubannið og vonumst við til að Partýið haldi áfram á Sjónvarpi Símans!