Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra hefur vakið mikla athygli fyrir nærgætna, örugga og mannlega nálgun á jafn vandasömum fréttum og að færa landsmönnum upplýsingar um kórónuveirufaraldurinn með sínu fólki.
Víðir hefur eignast ófáa aðdáendur og birti hann mynd af bréfi frá ungum manni á Facebook síðu sinni og segir það vera það fallegasta. Fréttablaðið greindi einnig frá
„Ég fékk tár í augun við að lesa þessa kveðju frá honum Pálma Víði 11 ára.“
Í bréfinu mátti lesa hjartnæma kveðju.
„Takk fyrir að hjálpa mér, vinum mínum og fjölskyldu, takk fyrir að passa upp á ömmu mína sem er 73 ára,“ skrifar Pálmi.
Hvað er betra en að vera minnst með þessum hætti og að hafa fært komandi kynslóðum von í hjarta um betri tíð.