Í flugvél
Meðal þeirra sem hafa smekk fyrir ástarleikjum í háloftunum eru John Legend og Chrissy Teigen, Miranda kerr og Orlando Bloom, Janet Jackson og Jermaine Dupri og Liam Neeson.
Á ströndinni
Jake Gyllenhaal og Kirsten Dunst voru saman um nokkurt skeið og höfðu gaman af því að stunda kynlíf á óhefðbundnum stöðum, svosem í bílnum, á baðherbergjum og á ströndinni.
Í limósínu
Þegar limósínuferðir eru daglegt brauð er manni hætt við að leiðast. Meðal þeirra sem hafa gert slíka bíltúra ánægjulegri en ella eru Will Smith og Jada Pinkett Smith og Angelina Jolie og hennar fyrrverandi Billy Bob Thornton.
Á klósetti í líkamsræktarstöð
Kourtney Kardashian og maðurinn hennar Scott Disick framlengdu góða æfingu
Á snekkju
Paris Hilton hitnar í hamsi þegar rándýrar snekkjur eru annars vegar
Í óperunni
Drew Barrymore fannst óperan hundleiðinleg og laumaðist á salernið með Fabrizio Moretti
Á klósetti í fjölskylduboði
Christina Aguilera samdi lagið “dirrty” og stóð við stóru orðin
Við Miklagljúfur
Ólíkindatólið Jenny McCarthy gerðist sek um að svala fýsn sinni á einum vinsælasta ferðamannastað í Bandaríkjunum.
Á listasafni
Kanye West lét hafa eftir sér að trúlega hefði dóttir hans og Kim Kardashian verið getin meðal endurreisnarmálverka í Flórens.
Undir borði í óskarspartíi
Heimildir herma að Miley Cyrus og þáverandi unnusti hennar Liam Hemsworth hafi átt erfitt með að hemja sig í óskarspartýi Vanity Fair árið 2012.
Á kamri á tónlistarhátíð
Gerald Butler fór á Coachella tónlistarhátíðina og… úff, ojj.