Myndir af einkabúgarði glæpamannsins Jeffrey Epstein hafa nú farið á flug á netinu, en búgarðurinn heitir Zorro og er staðsettur í Nýju-Mexíkó. Þar er neðanjarðarstrippklúbbur og myndavélar í hverju herbergi og pláss fyrir 30 „VIP“ gesti. Einkaflugvöllur er við býlið.
Nokkrum sinnum á hverju ári fór Jeffrey ásamt einhverjum vel völdum vinum á búgarðinn.
Sagt er að í kjallara hússins hafi verið strippklúbbur þar sem Jeffrey lét stúlkur undir lögaldri skemmta vinum sínum. „Ég sá hluti í þessu húsi, í tölvunum, sem lét mig hugsa hvort ég ætti í rauninni að vinna fyrir þennan mann,“ sagði fyrrum verktaki í viðtali hjá útvarpsstöðinni Albuquerque.
„Það voru fullt af myndum í römmum, á bókasafninu, á veggjunum og á skrifstofunni af honum og fáklæddum ungum stelpum og valdamiklu fólki. Það voru skúlptúrar út um allt sem voru erótískir, af kynferðislegum toga. Svo áttu allir að fara í sturtu saman,“ sagði hann en sturtan rúmar átta manns í einu.
Búgarðurinn var einn af mörgum eignum Epsteins, sem framdi sjálfsvíg í fangelsi þegar sækja átti hann til saka.