Faðir hefur nú deilt með internetinu svakalegum jólagjafalista tíu ára dóttur sinnar sem vill ekkert nema það besta. Á listanum eru 26 atriði sem hún óskar eftir að fá undir tréð nú í desember.
Í stað þess að biðja um Barbie eða Legokubba hefur þessi unga framsækna stúlka frá Los Angeles ákaflega fágaðan smekk. Á listanum eru Gucci inniskór, Chanel veski og MacBook Air tölvu.
Hún bað jólasveininn einnig um vekjaraklukku, ný rúmföt, matarlit, þvottaefni og bleikt límband.
Faðir hennar deildi listanum á Twitter og grínaðist með að hún „hlyti að vera viti sínu fjær.“
Einn sagði: „Að biðja um peninginn í lokin er alveg rokkstjörnu atriði.“ Annar sagði: „Gefðu henni vekjaraklukku! LOL, segðu henni að vakna upp frá draumnum.“
Ein sagði: „Hún er tíu ára! Hún þarf ekki ilmvatn! Hún á að fara út að leika sér!“