Það er eins og hafi kviknað í fyrirsætunni Jordyn Woods (22) en fyrrum besta vinkona Kylie Jenner ákvað að vera svolítið djörf og fara í neonlit. Hárkollan er frá Jonathan Wright í D Hair Boutique, en hún var í litlum svörtum leðurtopp við.
Jordyn hefur áður verið ljóshærð en hún hefur aldrei verið með svona lit áður. Árið 2017 var hún á hrekkjavökinni eins og djöfullinn…reyndar, en það var bara gervi. Þarna var Kylie ólétt en sagði engum frá því og var klædd sem engill. Margar stjörnurnar kjósa núna mjög djarfa hárliti…hvort sem það eru hárkollur eða litur! Jordyn sjálf er með eigin hárlengingalínu hjá fyrirtækinu Easilocks, Jordyn Woods x Easilocks Collection, en þar má finna toppa sem smellt er á, tagl og kollur.