Söngkonan Miley Cyrus (26) undirgekkst aðgerð á raddböndum eftir spítalainnlögn vegna hálskirtlabólgu í síðasta mánuði, samkvæmt People. Læknar uppgötvuðu í innlögninni vanda með raddböndin og sögðu henni að hún þyrfti í framhaldi á aðgerð að halda og þyrfti því „nokkrar vikur í algerri þögn“ að jafna sig eftir aðgerðina.
Auglýsing
Vinur hennar segir að henni „gangi afar vel og mun verða allt önnur og betri á næsta ári.“
Auglýsing
Kærastinn hennar, Cody Simpson póstaði mynd af ástinni sinni og sagði (væntanlega um aðgerðina) að hún hefði heppnast vel, eða „success.“