Fyrrum Playboy stúlkan og raunveruleikastjarnan Kendra Wilkinson er hætt með milljarðamæringnum Donald „DJ“ Friese en þau voru einungis að hittast í nokkra mánuði. Þau fóru saman í hrekkjavökupartý Paris Hilton þann 25. október og þau hættu víst saman daginn eftir en þau lentu í rifrildi: „Þau rifust alveg svakalega daginn eftir og hún hætti með honum,“ segir innanbúðarmaður við Radar.
Kendra og DJ höfðu ekki verið mikið saman opinberlega en greinilega var eitt rifrildi nóg: „Kendra varð alveg brjáluð út í hann og hætti með honum.“
Þau hafa meira segja hætt saman á Instagram sem táknar yfirleitt heilmikið í augum stjarnanna, sjá Miley og Liam. Kendra líkaði við póst frá 25. október þar sem hann „taggaði“ hana vegna hrekkjavökuteitisins:
„Thank you @parishilton for hosting an amazing evening of Tricks and Treats and inviting us into your beautiful home. Special credit to my photographer and host @kendrawilkinson,” skrifaði hann.
Þau sáust eitthvað saman í sumar, á búgarði föður hans, Donalds og í partýi í LA.
Donald hafði verið að setja daðurslegar athugasemdir við myndirnar hennar á Insta.
Þau eru bæði einstæðir foreldrar tveggja barna.