Leikarinn Ben Affleck fór beint til barnsmóður sinnar Jennifer Garner á sunnudagsmorguninn en hann féll á laugardagskvöldið eins og Sykur hefur greint frá. Sást hann staulast í bílinn, en hann hafði verið á hrekkjavökupartýi Unicef þar sem freistingarnar voru of margar.
Ben hefur barist við bakkus í mörg ár en hafði verið edrú í 14 mánuði. Hann fór í meðferð í Malibu í ágúst 2018. Jennifer Garner, sem á þrjú börn með leikaranum, hefur verið mikill stuðningur fyrir hann, og það er gott að vita að þau eigi svo fallegt samband.
Sunnudaginn 27. október leit Ben út fyrir að vera slakur þegar hann kom heim til Jen og krakkanna.
Þegar fréttamenn spurðu hann um fallið sagði hann: „Þetta gerist, þetta var sprunga, en ég ætla ekki að láta það eyðileggja fyrir mér.“ Aðspurður hvort hann ætlaði í meðferð neitaði hann að svara.