Nýtt myndband sýnir leikarann Ben Affleck detta og halda sér eða styðja sig við bíl eftir hrekkjavökuball Unicef í vestur-Hollywood laugardagskvöldið 26. október.
Ekki er vitað hvað orsakaði að hann átti svo erfitt með jafnvægi en TMZ, sem birti myndbandið, segir að hann sé fallinn í áfengisbindindinu, en hann var edrú í meira en ár.
Leikarinn (47) var í svörtum jakkafötum með hauskúpugrímu en hann opnaði sig á dögunum á Instagram og sagði edrúmennsku vera mjög erfiða „Að berjast við allar fíknir er lífstíðarvinna og erfið. Því er maður aldrei búinn í meðferð. Þetta er lífslöng barátta. Ég er að berjast fyrir mig og fjölskylduna.“
Hér er myndbandið sem TMZ birti: