Alltaf elskaður: Börn Luke Perry, Sophie og Jack Perry, minntust föður síns með hjartnæmum skilaboðum á samfélagsmiðlum en hann hefði orðið 53 ára föstudaginn 11. október.
Sophie sem er 19 ára póstaði tveimur útgáfum af sömu myndinni en Luke var á fyrri í bleiser að ofan. Á næstu mynd sýnir hún í hverju hann var að neðan en hann var í stuttbuxum! „Til hamingu með daginn tískuíkon,“ skrifaði hún. „Ég heyri í þér herma eftir Tim Gunn núna. Elska þig mest.“
Jack, 22, póstaði einnig svarthvítum myndum af föður sínum sem mynduðu andlit föður hans: „Afmæliskveðjur, gamli maður. Sé þig einhversstaðar,“ sagði hann.
View this post on InstagramHappy birthday, old man. I’ll see you somewhere. ♥️
A post shared by Jungle Boy • Jack Perry (@boy_myth_legend) on
Luke lést í mars aðeins 52 ára gamall. Var hann að leika í þáttunum Riverdale og var persóna hans skrifuð út úr handritinu.