Söngkonan Miley Cyrus er ekki að slaka neitt á þar sem hún er á lausu. Nú hefur hún játað að hafa „kelað“ við Cody og setti meira að segja myndband af þeim kyssast á samfélagsmiðla.
Segir hún við mynd af Cody berum að ofan og sagði hann ástralskan og alveg sína týpu:
„22 [check] Australian (my type) [check] Abs [check],Hot Girl Fall [check],” skrifaði hún á Instagramsöguna sína.
„Getur stelpa ekki fengið sér f**King açai skál og morgunkelerí í friði?!?!“
Cody og Miley eru vinir og sáust fyrr í vikunni í matvörubúð í Los Angeles þar sem þau kysstust. Þau fóru síðan í sleik á morgunverðarstað þar sem þau fengu sér açai skál.
Það eru einungis tvær vikur síðan Miley hætti með Kaitlynn Carter. Þær voru saman í nokkrar vikur eftir skilnað beggja. Hún veit að fólk hefur áhuga á sambandsmálum hennar og póstaði því þessu á Insta: