Hvaða tónlistarmenn flytja atriði á Super Bowl í Bandaríkjunum er alltaf spennandi að vita því það er afar mikill heiður. Nú hefur verið upplýst að Shakira og Jennifer Lopez munu eiga sviðið með rosalegum atriðum þann 2. febrúar 2020. Popstjörnurnar og NFL hafa staðfest þetta.
Segir JLo að hún og Shakira munu „kveikja í heiminum,“ eða „Going to set the world on .” Shakira sagði svo: „Þetta verður ekki stærra en þetta!“
Sögusagnir höfðu verið á kreiki fyrr í mánuðinum og sagði Jennifer að hana hefði alltaf langað að koma fram og það yrði heiður. Í fyrra fögnuðu Jennifer og unnustinn Alex Rodriguez ársafmæli saman á Super Bowl með krökkunum.