Leikarinn Ice-T hefur nú komið Coco Austin opinberlega til varnar þar sem hún var „mömmuskömmuð“ fyrir að gefa Chanel, sem verður brátt fjögurra ára brjóstið til huggunar.
„Þeir tala um þetta eins og barnið bara…drekki mjólk úr brjóstinu,“ sagði Ice við TMZ vegna umdeilds Instagrampósts Coco. „Öðru hvoru, skilurðu, vill hún verða náin mömmu sinni og það er það sem þær gera. Hún borðar mat, hún borðar andskotans ostborgara.“
Coco setti inn meðfylgjandi mynd af brjóstagjöf um borð í einkaflugvél og sagði frá vandræðum sínum við að gefa brjóst þegar Chanel fæddist. Fyrirsætan segist þó hafa „þraukað og nú, næstum fjórum árum seinna vill Chanel enn brjóstið…þetta er meira huggunardæmi núna og auðvitað borðar hún reglulega en þegar hún leggur sig og sefur er ég heppin að hún er ekki vaxin uppúr þessu því þegar kemur að því augnabliki verð ég mjög döpur.“
Póstur Coco fór á flug á netinu með allskonar athugasemdir- neikvæðar og jákvæðar.
Ice-T og Coco gengu að eiga hvort annað árið 2005 og Chanel verður fjögurra ára í nóvember