Prófmál í Norður-Karólínuríki féll stefnanda í vil, en Elizabeth Clark stefndi fyrrum eiginmanni sínum fyrir að birta nektarmyndir af henni á samfélagsmiðlum. Elizsabeth sendi manninum, Adam Clark, myndir af sér berri að ofan þegar hann var í þjálfunarbúðum í hernum. Þau skildu árið 2018 og þá setti hann myndina á netið. „Af hverju gerir einhver svona? Hann elskaði mig og kvæntist mér og gera svo eitthvað svona til að særa mig…ekki bara mig, heldur krakkana okkar?“
Auglýsing