Árið 2012 var maður að nafni Israel Keyes handtekinn af lögreglu í tengslum við morð á kaffibarþjóni í Alaskaríki, Bandaríkjunum. Þetta var þó ekki eina morðið sem hann tengdist. Er hann grunaður um a.m.k. tíu morð í viðbót. Maureen Callahan, höfundur bókarinnar American Predator: The Hunt for the Most Meticulous Serial Killer of the 21st Century, telur að þessi tala sé mun hærri: „Hann myrti fólk um öll Bandaríkin,“ segir hún.
Auglýsing