Einn uppáhalds þátttakandi margra úr þáttunum Project Runway er látinn. Fatahönnuðurinn Chris March varð 56 ára. Samkvæmt TMZ var dánarorsökin hjartaáfall, en Chris lést á fimmtudagskvöld.
Chris var frá Alameda, Kaliforníuríki og var búningahönnuður fyrir tímaritið „Beach Blanket Babylon” áður en hann var keppandi í fjórðu þáttaröð Project Runway. Hann bjó svo í San Fransisco, Bay Area. Hann kom einnig fram í þáttunum „Project Runway All Stars,” og „Project Runway: All-Star Challenge.”
March hannaði svo fatnað á Beyoncé, Meryl Streep, Lady Gaga og Madonnu.
Í júní 2017 datt hann í íbúðinni sinni og var í dái í tvo mánuði. Þegar hann vaknaði var hann lamaður frá hnéi á báðum fótum og hægri hönd einnig. Hann átti mjög erfitt uppdráttar eftir það, en var alltaf bjartsýnn og þakklátur aðdáendum sínum.