Meghan Markle og Harry Bretaprins eru sögð orðin afar þreytt á stöðugri gagnrýni á allt sem þau gera í Bretlandi, samkvæmt The Mail on Sunday. Er þar einnig sagt að þau hafi verið sett í „fórnarlambshlutverkið“ eftir að óvildarmenn réðust á þau eftir að þau ferðuðust um í einkaþotu og líka varðandi önnur mál.
Ætla þau að flytja til Hollywood, þar sem Meghan fæddist?
Charles Bretaprins hefur stungið upp á að þau flytji í býli á Herefordskíri. Meghan (38) og Harry (34) vilja ekki búa þar og hafa í raun hunsað umræðuna. Charles vildi að Harry myndi eiga sveitabýli nálægt velsku landamærunum. Harry hefur ekki áhuga á því og gæti verið að íhuga að flytja til Bandaríkjanna með Meghan og Archie sem er nú þriggja mánaða.
„Á tíunda áratugnum var ákveðið að Harry, þá barn, myndi eignast fjölskyldu og myndi byggja sveitabýli. Charles vildi Herefordskíri, taldi að Harry myndi elska það,“ segir heimildarmaður við The Mail on Sunday.