Þann 31. ágúst 2019 gekk söngkonan Ellie Goulding að eiga listaverkasalann Caspar Jopling við fallega athöfn á Jórvíkurskíri í Bretlandi.
Brúðkaupið var stjörnum prýtt og voru þar engir aðrir en Rita Ora, Ed Sheeran, Karlie Kloss, Katy Perry, Orlando Bloom, Sienna Miller, Cressida Bonas, James Blunt og Sarah Ferguson ásamt prinsessunum Beatrice og Eugene.
Ellie, sem er 32 ára var í Chloé kjól sem hannaður var af Natacha Ramsay-Leví en Caspar (27) var í fötum frá Huntsman. Afar glæsileg bæði tvö!
Þau tilkynntu um trúlofun sína í breska dagblaðinu The Times í ágúst 2018, en fyrst var talað um þau sem par í mars árið 2017. Þau hafa verið afar ötul að dásama hvort annað á samfélagsmiðlum, þrátt fyrir að halda sínu einkalífi fyrir sig.