Fyrirsætan Jeremy Meeks, sem komst í heimsfréttirnar eftir að fangamynd af honum fór á flug á netinu, segist enn vera að hitta erfingja Top Shop Chloe Green þrátt fyrir að upp hafi komist um hana kyssandi annan mann á snekkju.
„Ég finn ekki neitt, maður,“ sagði Meeks (35) við TMZ miðvikudaginn 28. ágúst aðspurður um hvernig honum liði. Svo sagði hann að þau væru enn par: „Við erum enn saman,“ sagði hann.
Chloe sást í heitum faðmlögum við pólóleikarann Rommy Gianni þann 10 ágúst síðastliðinn en þau voru um borð í snekkju á miðjarðarhafinu. Hún var ber að ofan og þau voru alls ekki feimin við myndavélarnar.
Talið var að Chloe og Jeremy, sem eiga 14 mánaða son saman, Jayden Meeks-Green, hafi verið hætt saman, en á góðum nótum. Jeremy sagði við TMZ að þau væru enn saman, þannig annaðhvort er hann í ruglinu eða þau í opnu sambandi.
Jeremy og Chloe, sem er dóttir milljarðamæringsins Philip Green, hafa verið saman síðan í júní 2017. Þá var hann enn giftur fyrrverandi konunni sinni, Melissu. Skilnaðurinn var frágenginn í júní 2018 og þau hafa sameiginlegt forræði yfir 10 ára syni þeirra, Jeremy Jr.