Þrátt fyrir að eiga langt í land með að slá kjúklinga-chow mein út sem uppáhalds skyndibiti Breta er fimmföld aukning á kröfum um vegan skyndibita á síðastliðnum tveimur árum.
Borgarar sem gerðir eru úr svartbaunum, sætum kartöflum, kínóa og fleiru og vegan „steiktur kjúklingur“ er eitthvað sem er að verða vinsælla á skyndibitastöðum en kebab og tikka masala þegar fólk nennir ekki að elda.
Talið er að um 600.000 manns séu vegan eða grænkerar í Bretlandi (2018). Með aukningu á „flexitarians“ sem teljast þeir sem borða kjöt en kjósa að minnka kjötneyslu má sjá 388% aukningu milli 2016-2018 hjá þeim sem kjósa vegan skyndibita.
Vinsælustu réttirnir í appinu eru vegatsu frá Wagamama (vegan katsu karrí), vegan margaríta frá Pizza Express og reyktur chorizo og ostborgari frá Arancini Brothers.
Fólk er því ekki að sleppa skyndibitanum, heldur snúa sér að honum, segir Ibrahim Dogus, formaður British Takeaway Campaign.
Veitingamenn verða því að anna eftirspurn fyrir það fólk sem kýs að borða ekki kjöt eða minnka dýraneyslu. Jet2 flugfélagið býður nú upp á arrabiata pasta á matseðli og Ryanair býður upp á vegan lasagna.
Heimild: The Guardian