Þegar kemur að brúðkaupsdeginum er brúðarkjóllinn kannski veigamesta atriðið fyrir suma. Fólk er alltaf spennt að sjá hverju brúðurin klæðist og að sjálfsögðu vill hún líta sem best út – helst ógleymanlega.
Hvítt er sennilega vinsælast en ef þú ert að leita þér að kjól skaltu forðast slaufur á furðulegum stöðum.
Póstur sem farið hefur á flug á netinu sýnir brúði klæðast hvítum kjól með brúnni slaufu að aftan…á rassinum skulum við bara segja hreint út. Margir hafa haft á orði að það er eins og konan hafi lent í vandræðalegu slysi: „Já, það sem allar brúðir vilja – brúnn flaumur úr rassinum á giftingardaginn.“
„Skíta hönnun. Bókstaflega.“
„Ó nei…það er eins og hún hafi sk**** í sig…en óheppilegt.“
Margir sögðu að vegna litarins væri myndin svona og þetta væri kannski ekki jafn slæmt í raun og veru.