Allt í sleik! Miley Cyrus er skilin við Liam Hemsworth og eru þær Kaitlynn Carter á ferðalagi á Ítalíu. Kaitlynn er stjarna úr þáttunum The Hills og er nýskilin við Brody Jenner, sem er sonur Caitlyn Jenner.
Á myndum sem náðust sáust Miley og Kaitlynn faðmast, halda utan um hvor aðra og kyssast þar sem þær lágu í sólbaði. Þær eru þar með systur Miley, Brandi.
Miley og Liam voru að skilja en Kaitlynn skildi þann 2 ágúst síðastliðinn. Hún giftist Brody fyrir ári síðan í Indónesíu.
Miley hefur skilgreint sig sem „queer” og segir að ást skipti ekki máli þegar um kyn er að ræða. Um hjónaband sitt og Liams, sagði hún það koma fólki mjög á óvart að hún væri gift. „Hann er einstaklingurinn sem styður mig mest. Ég fell alls ekki inn í skilgreiningu sem hefðbundin eiginkona. Mér líkar ekki einu sinni við orðið.”