Hinir svokölluðu áhrifavaldar á Instagram verða æ örvæntingarfyllri að láta líta út fyrir að þeir lifi hinu ljúfa lífi…á netinu allavega. Við eigum samt ekki að trúa öllu sem við sjáum!
Kona nokkur póstaði nokkrum myndum úr „fjallgöngu“ þar sem hún fékk þúsundir „læka“ en systir hennar afhjúpaði það fljótlega.
Casey Sosnowski póstaði mynd af sér þar sem hún var í íþróttafötum með vatnsbrúsa…og leit út sem hún væri úti á göngustíg í fjalllendi, njótandi náttúrunnar. Raunverulega var hún þó mun nær heimili sínu. Nefnilega í bakgarðinum heima hjá sér.
Þessu póstaði Casey á Insta (athugið að hún breytti myndatextanum eftir að upp um hana komst, fyrst sagði hún: Nature is the ultimate healer to all our problems #NatureLovers):
My sister said she was going hiking…..this is our backyard. pic.twitter.com/LDGhAHNSSp — ℂ𝕒𝕣𝕝𝕪 𝕊𝕠𝕤𝕟𝕠𝕨𝕤𝕜𝕚 (@carlysos3) 4 August 2019