Leikarinn Ewan McGregor ætlar að ganga að eiga hjákonuna sem varð kærasta Mary Elizabeth Winstead. Það fer ekki vel í dætur hans, þær Esther og Clöru McGregor sem finnst það „ógeðslegt” að hann ætli að kvænast henni, samkvæmt nafnlausum heimildarmanni í viðtali við Radar.
Clara skrifaði athugasemd við mynd af Mary Elizabeth á samfélagsmiðlum þar sem einhver hafði póstað myndinni: „Fallegasta og hæfileikastaríka kona á jörð? Oh, maður, þið eruð öll full af blekkingum. Þessi stelpa er drasl.”
Hún baðst svo afsökunar á ummælunum við breska The Times, og sagði þetta ekki vera mjög fullorðinslegt að hegða sér svona: „Ég var bara mjög reið og í uppnámi.”
Heimildarmaðurinn segir: „Þær hreinlega trúa því ekki að hann geti verið svo harðbrjósta að kvænast konunni sem reif fjölskyldu þeirra í sundur og hafa grátbeðið hann að taka sig saman í andlitinu.”
Ewan var kvæntur móður stúlknanna Eve Makrakis (53) í 22 ár.
Í hjónabandinu sást hann kyssa Mary á bar í október 2017. Hann viðurkenndi síðar að vera ástfanginn, bað um skilnað en Eve var sannfærð um að hann hefði haldið framhjá sér: „Eve er viss um að Ewan og Mary voru saman áður en hann bað um skilnað. Það er mjög erfitt fyrir hana að trúa honum,” sagði vinur hjónanna á þeim tíma.