Við erum vanar að fara, eða þekkjum einhverjar sem fara í neglur og fá sér langar neglur…á hendurnar. Þetta sumarið hefur fólk verið að fá sér langar neglur…en á tærnar í stað handa.
Við erum ekkert að grínast.
Ef þú skoðar Instagram er myllumerkið #LongToeNails með ógynni mynda af afar mörgum tásum með langar neglur. Bæði er í tísku að hafa franskar ásamt allskonar litum.
Hundruðir mynda eru á Insta, ásamt kommentum frá fólki sem annaðhvort dásamar þetta tískufyrirbrigði eða hatar það. „Þetta er óþægilegt að sjá. Ég myndi aldrei komast í strigaskóna mína með þessu,“ sagði einn.
„Þetta er bara rangt,“ sagði annar. „Ég ætla að kasta upp. Nei, bara NEI, NEI!“
Svo voru margir sem bentu á þá augljósu staðreynd að þetta er vissulega takmarkandi hvað skóbúnað varðar. Einnig í svefni…myndi maður ekki rífa rúmfötin með þetta?