Fimmtug og glæsileg! Jennifer Lopez fagnaði fimmtugafmælinu með stæl á Gloria Estefan Estate á „Stjörnueyju“ eða Star Island, Miami, Flórídaríki.
Þann 24. júlí varð söng-og leikkonan fimmtug og voru vinir hennar þar með henni ásamt unnustanum Alex Rodriguez.
Allt var í gulli, líka JLo sjálf: „A lil bday turn up #itsmyparty #allthewayup #repost @arod TONIGHT was a Jenny from the Block party, and we took it from the Bronx all the way to the 305!!! ” sagði hún við myndband sem hún póstaði á samfélagsmiðlum.
Gestir voru m.a. Ashanti, DJ Khaled, DJ Cassidy, Benny Medina og Lorena Cartegena.
Jenny virtist skemmta sér vel – hún drakk flotta kokteila, spjallaði og djammaði.