Það er óhætt að kalla Suri Cruise „mini-me“ þegar kemur að móður hennar Katie Holmes! Hún líkist henni meira og meira og er orðin afskaplega stór og flott ung kona. Þrátt fyrir að Suri sé aðeins 13 ára má ekki gleyma því að Katie varð heimsfræg 19 ára eftir að hafa leikið í unglingaþáttunum vinsælu Dawson’s Creek.
Gæti verið að Suri myndi vilja feta í fótspor móður sinnar og verða fræg unglingsstjarna? Vinur mæðgnanna sagði í viðtali við Radar: „Módelskrifstofur eru næstum berjandi niður dyrnar hjá Katie til að reyna að fá Suri á samning.
Hvort sem Suri telur sig tilbúna eður ei er Katie mjög varkár þegar kemur að hugsanlegum frama dóttur hennar í sviðsljósinu: „Hún var sjálf í raun barnastjarna og er ekki viss um hvort hún vilji að Suri alist upp í þessum iðnaði.“
Myndir náðust af þeim mæðgum njóta sumarsins á Manhattan, Upper West Side, mánudaginn 22. júlí.
Auglýsing
Auglýsing