Glastonbury hátíðin er alltaf full af glaumi og gleði. Bæði söngkonan Dua Lipa og Chris Martin, forsprakki Coldplay voru á staðnum síðustu helgi.
Margir fullyrða að þeir hafi séð þau í sleik! En Chris neitar þessu. Talsmaður hans sagði: „Fréttaflutningur í dag hefur sagt frá Chris og Dua vera að kyssast. Þetta er þvert á móti. Þau kysstust ekki á Glastonbury og eru bara vinir. Þau voru bæði á sama svæði með fullt af vinum sínum.“
Neitun þessi kemur í kjölfar þess að Chris, sem áður var giftur Gwyneth Paltrow, er hættur með Dakota Johnson.
Dua og Chris eru sögð hafa átt í stuttu sambandi áður, en það hefur ekki fengist staðfest.