Kynnirinn þekkti, Ryan Seacrest, nennir ekki að vera einhleypur lengi: Aðeins fjórum mánuðum eftir að hann hætti með kærustunni til þriggja ára, Shayna Taylor, sást hann kyssa nýja konu í fríi í Suður-Frakklandi.
Ryan (44) og nýja konan, sem ekki hefur verið nafngreind, voru mynduð í Antibes, þar sem þau syntu í sjónum fyrir utan strönd glæsihótelsins Hotel du Cap-Eden-Roc. Eftir að hafa synt voru þau ekki feimin að láta vel að hvort öðru.
Ryan og dökkhærða konan virtust afar afslöppuð og hamingjusöm.
Ryan og Shayna hættu saman skömmu eftir Valentínusardaginn 2019, en sambandið var hreinlega búið. Þau voru á mismunandi stöðum í lífunum og vildi Shayna (27) meira en Ryan. Hún vildi ganga í það heilaga en Ryan var ekki tilbúinn, samkvæmt vinum parsins.