Paradísareyjurnar Barbados eru í færi stjarnanna þegar kemur að sumarleyfi. Þangað hefur Harry Bretaprins farið og Hollywoodliðið einnig…þú getur líka farið þangað ef þú lumar á einhverju milli handanna!
Gestir sem villan hefur hýst eru meðal annars Rihanna, Tom Cruise,Hugh Grant, Elton John, Nicole Kidman, Rod Stewart, Mark Wahlberg og Sting.
X Factor aðdáendur kannast kannski við villuna en Simon Cowell nýtir hana í þáttunum.
Villan er að sjálfsögðu við ströndina, er 10 herbergja og þar er líkamsrækt, spa, nuddpottar og bíóhús.
Cove Spring House er með sína eigin strönd þar sem þú horfir yfir karabíska hafið.