Margir urðu ævareiðir þegar ónefndur aðili játaði að skemmta sér stundum við að breyta merkingum á grænmetislasagna og kjötlasagna í matvörubúðinni. Montaði hann sig af þessu á Facebookgrúppu í pósti þar.
Á mynd sem hann póstaði af bæði grænmetis- og kjötlasagna sagði hann: „Suma morgna skrepp ég í Tesco og skipti pappaspjöldunum á þessum bara að gamni.“
Flestir sem sáu póstinn urðu allt annað en ánægðir. Einn sagði: „Þetta er allt voða fyndið þar til þú óvart drepur einhvern sem er með ofnæmi.“
Annar sagði: „Það er ekkert fyndið við þetta, bara óþroskað og óábyrgt.“
Talsmaður Tesco segist hafa verið látinn vita af þessu og verið sé að skoða málið.