Íslendingar eru afar hrifnir af Spáni og nú berast góðar fréttir fyrir þá sem þora! Ein stærsta vatnsrennibraut heims er nú staðsett í Aqualandia sem margir kannast við, en garðurinn er á Benidorm.
Auglýsing
Brautin heitir Cyclon og er full af beygjum, föllum og dropum. Þú lendir svo í hringiðu eða svelg sem er 20 metrar í þvermál og 200 metrar á lengd.
Auglýsing
Iðkendur geta náð allt að 60 km hraða á klukkustund áður en þeir lenda í hringiðunni. Það geta allt að fjórir farið í bununa saman, þannig öll fjölskyldan getur skemmt sér!