Er annar skilnaður á leiðinni hjá leikkonunni og heilsufrömuðnum Gwyneth Paltrow? Hún hefur nú sagt opinberlega að þau hjónin búi ekki saman alltaf, heldur fjórar nætur í viku.
„Oh, allir giftu vinir mínir segja að þetta hljómi dásamlega og við ættum ekki að breyta neinu,“ segir Gwyn (46) í viðtali hjá The Sunday Times um hvernig það sé þegar eiginmaðurinn fer „heim til sín“ þrjú kvöld í viku.
Gwyneth segir að „nándarþjálfarinn“ hennar (e. intimacy coach) hafi samþykkt samkomulagið sem þykir harla óvenjulegt. Segir hann að þetta gefi „pólun“ á sambandið, eða jafnvægi.
Gwyn á tvö börn með fyrrum eiginmanninum Chris Martin og þegar þau skildu sagði hún að þau væru „vísvitandi að fjarlægjast hvort annað.“
Brad og Gwyn voru saman í þrjú ár áður en þau giftu sig í september 2018. Í desember höfðu. þau ekki flutt inn saman: „Við erum að gera þetta á okkar hátt. Ég hef aldrei verið stjúpmóðir áður. Ég veit ekkert hvernig maður gerir það. Það er erfitt með táninga.“
Gwyn og Brad sáust í hávaðarifrildi í Los Angeles í lok mars: „Þau voru hreinlega brjáluð út í hvort annað,“ sagði sjónarvottur.
Vinur leikkonunnar segir: „Gwyneth getur verið mjög erfið. Hún er vön að fá sínu framgengt í fyrirtækinu sínu Goop, sem og í kvikmyndabransanum.“