Kate er sögð hafa viljað laga ástandið til að börnin liðu ekki fyrir það: „Ósættið milli bræðranna og eiginkvennanna hefur sundrað fjölskyldunni og Kate ákvað að nú væri komið nóg,“ sagði innanbúðarmaður í höllinni. Segir hann að hún hefði áttað sig að ef þetta yrði ekki lagað „yrði sambandið milli George og Charlotte og Archie aldrei náið.“
Auglýsing
Þetta hlýtur að vera ánægjulegt fyrir drottninguna sem varð 93 ára þann 21. apríl síðastliðinn. Trooping The Colour er opinber afmælishátíð hennar.
Meghan fór úr fæðingarorlofinu til að hitta fjölskylduna. Hún sleppti því alveg að hitta Donald Trump, en hann var í Bretlandi í síðustu viku.